Pink is the color of passions...
Hver er ég??
ég er lítil dökkhærð & bráðskemmtileg Reykjavíkurmær. Já &... ég á gaur sem er fæddur 2004 svo ég hef nóg að gera, hann sér alveg um að halda mér við efnið. Áhugamálin eru tónlist, vera í góðra vina hópi, fjölskyldan að sjáfsögðu & ferðalög, innanlands sem utan. Ég bý með gaurnum mínum ásamt varðkettinum honum Amor í Reykjavík.
11.02.2009 23:17:14 / PinkLady

.....

Komin í pásu .... blogg-pásu.

Heilasellurnar eru atvinnulausar sem stendur !!!! & veldur það mikilli ritstíflu.

Thanx amigos .... later PinkLady has left the building.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2009 23:25:52 / PinkLady

Lalalala Ævintýri eeen gerast ...

ahaaha ... en jebb ... ég flaug austur til hennar Oz í gær & skellti mér í smá náttfatapartý hehe .. stutt & laggott, svaka stuð & allt það. En ekki hvað.  Var reyndar smá vesen með flugið:klikk:, svo var smá vesen með að komast inn hjá henni þar sem hún var lyklalaus:haha: & ég skreið inn um gluggann & opnaði. Ok, ekki er sagan öll því svo fundust lyklarnir. Í peysunni hennar Oz sem hún var í !!!! ;) Þetta fannst henni ferlega fyndið ... Nú svo átti að horfa á dvd í þessu geimi hjá okkur en eikkað klikkaði spilarinn & heimabíóið. En þetta var samt ferlega gaman.
Flugið heim var líka soldið skondið því það var smá ókyrrð í loftinu & greyið Oz missti næstum kaffibollann yfir hausin á manninum fyrir framan .. það hefði verið illa farið með gott kaffi, því flugvélakaffi er nebbla gott. Að hætti Oz allavega. Fékk alveg æðislega uppskrift.

Ég veit orðið varla hvað ég á að blogga lengur ... er orðin voða tóm eitthvað. Aldurinn að færast yfir eða eitthvað hihi. Þessi íbúð sem ég fékk er æðisleg & nú þegar allt er komið á sinn stað, þá lýður mér bara dásamlega vel.

Nova net pungur er snilld ... & ég ætla bara halda mig við það .. dömpaði bara TAL. Ætla líka hætta með heimasímann. Kreppa & spara. Hihihihi ... jæja mæ lovs .. kötturinn minn er kominn út úr skápnum & þar með er hann hundur. Hann heldur það að minnsta kosti.

Já & hey hey ... mig vantar sófa núna strax. Ef einhver er að losa sig við sófa .. plz komment. Mér er illt í bakinu að sitja í því sem ég hef hér svona lengi ... get ekki legið fyrir framan televisjonið. Nema jú setja 2 stóla saman, það dugar skammt.

*pinklady has left the building .. with nothing more 2 say


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 20:03:16 / PinkLady

stjörnuspáin and more

bogmaðurinn

Jæja þá er kominn mánudagur og þú ekki búin(n) með nema hluta af því sem þú þó hafðir ákveðið. Þetta er svo sem engin ný bóla með fólk í merkinu bogmaðurinn. Taktu þér tak og vittu til... Líf þitt breytist hraðar en þig hefði getað órað fyrir. Láttu hjartað ráða ferðinni og óttastu ekki að treysta eigin hugboðum. Undirmeðvitundin er alls óvitlaus. Þú munt öðlast frægð og frama innan fárra ára farirðu eftir hugboðum þínum svo nú er þetta bara spurning um að þora.

Spennandi hehe .... En þetta passar samt allavega fyrri partur, ég er ekki búin með nema hluta af því sem áætlað var. But pípol, mí dónt kjer. Stress er algjörlega af minni dagskrá hér eftir. Lífið er of stutt & hvað þá þegar maður er bara 1,53 cm !!!
Ég er búin að flytja, búin að skila gömlu íbúðinni, komin af stað með að koma mér fyrir & mér líður alveg svakalega vel. Gott fólk hefur veitt mér styrk & aðstoð, ég á alveg frábæra fjölskyldu það sýndi sig enn & aftur & ég er þakklát fyrir það.
Á eftir að bjóða ykkur vel völdum í innflutingskaffi & partý & co fljótlega. Idolspilið var því miður upptekið. Þ.E.A.S það er samningsbundið gamlárskvöldunum hjá Alheimsprinsessunni. Gat ekki farið að rifta því folks.

Anyways, nú ætla ég, að standa upp af afturendanum & fara skipuleggja óskipulagið hjá mér. Er líka að skipuleggja stutta en skemmtilega ferð í smá frí. Vonandi bara gengur allt eftir sem þarf ... því náttfatapartý hljóma alltaf vel ... var boðið í eitt slíkt tíhí.

Well pípol, munið að vera góð hvert við annað & höldum friðinn saman. Hann er alveg nauðsynlegur í svona kreppu. OK !!!
PinkLady has left the building ... 4 now

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 19:30:40 / PinkLady

Jeiiii lífið er yndislegt sjáðu, það er rétt að byrja hér.

BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
Með smitandi ást þinni á lífinu getur þú hjálpað manneskjunni sem veit ekki hvernig hún á að haga sér.

Huxið ykkur hvað stjörnuspáin mín er flott fyrir þennan dag í dag sem er senn á enda. En hver er það around me sem veit ekki hvernig hún á að haga sér ... hmm.. hey ef þú ert að lesa ekki skilja eftir komment hringdu bara ... er með gemsan opin ;o)

Nú anyways my love's ég er bara á kafi í flutningum, kössum & drasli & veit auðvitað ekkert skemmtilegra í lífinu en að taka til & bóna hehe. Er samt að spá í að byggja mér virki úr kössunum, fara í svona leik eins & Joey & Chandler gerðu hér í einhverjum þættinum. Jebb er mikill friends aðdáandi & kann sjálfsagt alla þættina utan af. Enda vann ég Friends spilið á FM 957 hérna árið 2004 minnir mig fyrir að geta svarað spurniongum úr þessum þáttum. Má bæta við að útvarpsmaðurinn hló af mér !!! *roðna-niðrí-rassgat* Eða þá allavega.

Flutningar segiði það eru allir að flytja, ég auðvitað eins & ég hef minnst á, AlheimsPrinsessan & hennar viðhengi, Brynjar fyrrv. nágranni minn í Æsunni, Kit farin að spá í stórum draumum annars staðar. Vááá já það eru allir að flytja. Vinkona hennar Stellu er að færa sig. Held að kreppan sé að fara í alla & allir fá svona fiðrildiskreppu inn í sig & finna sig knúin til að breyta til & gera nýja & spennandi hluti. Ekki hjakka endalaust í sama farinu bara. Það er ekkert gaman.

Núhh, my love's ... Jóhanna Sigurðar sagði svo eftirminnilega "minn tími mun koma" !! Stolt af kelluni að haldið áfram .... BURT MEÐ ÞIG GEIR H. HAARDE. Jæja Davíð næstur .. tutilu.

PinkLady has left the building & kveður með lífsinsBROS á vör & vonar að öllum líði vel nær & fjær. Stórt knús til Hawai .... snjúshúsknús.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 16:33:44 / PinkLady

Spyr sá sem ekki veit

líftími án nettengingar ?? Hver ætli hann sé ? & án tölvu ofan á lagt. Þetta er mjööög erfitt. Ég sef með súrefniskút & fer í sérstaka símasálfræðitíma 2 svar á dag hjá Kettinum. Sem hefur notabene sagt af sér jólaKöttur & ætlar að vera sálfræðiKöttur fyrir Velkomna. Heppinn ég marh :D
Anyways STÓRFRÉTTIR FOLKS ... ég fékk íbúð í blokkinni á skámóti mér. á 5 hæð. Ferlega flott íbúð. Miklu flottari en sú sem er svo sagði hún mér líka konan frá vissri gæfu sem fylgir íbúðinni. Vona að hún komi líka til mín hehe. Yfirbyggt altaninn & hún ætlar að skilja eftir hitablásara til ylja upp æa vetrarkvöldum. Sem reyndar eru að verða að sumarkvöldum áður en langt um líður. Yndislegt líf eða yndislegur & dásamlegur dagur eins & sonur minn myndi segja 8)
Fæ lyklana fljótlega & get þá farið að flytja hægt & rólega ... ohhh er ekki lífið yndislegt .. ó jú er skoh hamingjusömust í heimi núna & finnst mér ekkert vanta.

Nú það er alveg helling sem ég vill segja bara er hjá Stellu að blogga hihi :haha: & get ekki alveg hangið hérna online bara :D

En smá slys kom fyrir í fyrradag, hann Amor minn, Svarti Sambó eða hvað þið viljið kalla hann datt út um eldhúsgluggann. LOL ferlega fyndið líka þar sem hann sannaði að kettir hafa 9 líf (hann er búin með 3) núna allavega bólgnaði bara rétt á nefinu þessi elska ... datt á nefið ;o) En hann er hress núna þessi elska & við erum sko bara búin að kúra saman síðan ... hann sleppir mér ekki. Liggur upp við magann á mér all day long & vill helst ekkert að ég fari úr rúminu. En marh verður víst að gera daginn af einhverju & njóta þessa yndislega lífs sem við eigum.

Adios amico ... PinkLady has left the building.



» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2009 04:27:34 / PinkLady

Gleðilegt nýtt kreppuár :)

Áramótin mín voru AWESOME ... byrjaði kvöldið hjá foreldrum & var það frekar tómlegt svona en notalegt virkilega. mormor & morfar voru lasin& Lonni & hennar family voru í hinum húsunum, pa var lasinn ... & Mikki  minn hjá pabba sínum. Svo kíkti ég til mister mistery-man & vina okkar ... fullt af frábæru fólki þar á ferð ... & við gerðum fullt af frábærum hlutum en ekki hvað ... til dæmis var það hún Katý sem dansaði alveg svakalega uppá borðum fyrir okkur meðan Atli tók létta sveiflu með honum Elvari. Fer ekkert nánar í það .. bara fyrir okkur að vita & alls engan að komast að.
Röltum smá um bæinn á nokkra vel valda staði & enduðum þetta með spili hér heima fyrir. Kötturinn lét auðvitað sjá sig & Ozzy var yndisleg sem aldrei fyrr.

Hvað er meira við hæfi en að fara yfir hvað stendur mest upp úr á árinu sem leið?
Ætli fæðing systurdóttur minnar c ekki svona sem hæðst ber ... hún Gunnhildur María sætasta prinsessa. Svo má nefna YNDISLEGA spánarferð sem ég fór með Móður í KvíKví í Apríl  ohhh þetta var æðsileg ferð mi amigo ... Costa Del Sol ... bara næs sko . Mömmu fannst þetta sko oof mikið fyrir unga fólkið þar sem næturklúbbalífið var heldur í meira kantinum þarna. Mi like mi like.
Nú hvað meir hvað meir ... 1 undur bættist í fjölskylduna á árinu, hún Opal okkar sem mér finnst reyndar eins & hafi alltaf átt heima hjá okkur. (já ok eða ykkur í skjólinu, ég á þær líka sko)
Mikki minn er alltaf í stöðugum framförum, & er bara orðin alveg ferlega klár & flottur strákur, við liggjum hér & stöfum orðin fram & til baka, enda kann hann stafrófið, hann kann stóra & litla stafi. Hann kann að telja upp á 30 ef ekki meira & já, þekkir orðið orðin, mamma, pabbi, mikael orri ammaGú & svo framvegis eins & lófan á sér. Já þetta er skoh soddann snillingur sem ég á.

Fór einmitt að sjá sólskinsdrenginn í kvöld með henni mömmu & Guðný vinkonu hennar & Fjólu vinkonu hennar hihi í Háskólabíó & vá, ég gat ekki annað en tárast pínu í lok myndarinnar. Þá var strákurinn að ná að tjá sig í fyrsta skipti almennilega 10 ára & gat sagt á ENSKU notabene eða stafað, að hann væri búin að búa til tónlist í höfðinu á sér síðan hann var lítill strákur. Það var svo mikil gleði í augum mömmunnar sem er svo ólýsanleg tilfinning ábyggilega ... vá, mæli með því að allir sjái þessa mynd bara til að sjá heim einhverfra í nýju ljósi. Það er ALLT hægt & þessi mynd sýnir það. Með opnum huga & enga dóma ... það er ekkert barn eins. Ekki frekar enn að við 2 heilbriðgða einstaklinga eins ... það eru allir eins & þeir eru. Svo er nú bara það.

Áramótaskaupið ... það er annað, frábært skaup. Það er sko fullt af fólki sem á enga peninga & býr, bara svona í pappakössum .. hehe ... ha ertu ólétt ?? Ha já .. & hvað erum við ekki saman lengur ?? ha nei ... & hvað ætlaðir þú ekkert að sega mér það eða ?? Æi kommentaðu bara LOL verð að sjá þetta aftur sko. Pabbi hló líka, leit á mömmu & sagði IN YOUR FACE FACEBOOK WOMAN ehehhehehhehehe ....

Svo er nýjasta hjá gullinu mínu ef ég hlæ af einverju eins & tildæmis msn eða myndinni í sjónvarpinu þá heyrist í honum : Mamma þetta var ekki fyndið. & hafðu það bara góða mamma hann veit sko hvað syngur.

En jæja mæ beibís, þarf að skjótast að æfa þennan borðdans sem Katý vill að við lærum. Við kötturinn hlýðum.

PinkLady has lef the building ... adios mi amigo


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 22:51:00 / PinkLady

Jeg har min hest jeg har min laso ...

Já eða Mikki minn reyndar har sin hest:d Ég fór nefnilega með snjóþotu um daginn út á leikskóla  & þegar ég var á leiðinni heim með strákinn þá leið mér actully eins & hest ... afhverju ? jú látum okkur sjá, hann gargaði alltaf hlauptu mamma hlauptu, hraðar já hraðar ... vei vei ... ég var hestur & hann var reiðmaður. Hann allavega stjórnar mér & hefur víst fullan rétt til þess svona af & til hehe :)
Nú hvað meir hvað meir ... ohhh ég er svo ferlega muninn hvað ég ætla blogga þangað til ég blogga ... þá er ritstífla ... and that is happening now.
Get þulið upp hvernig aðfangadagskvöld var ... borðaði, borðaði meira & svo ennþá meira (er ennþá að borða) & er að huxa um að borða þangað til á morgun. En svo komu pakkar ... alltaf gaman að fá pakka ... dosent matter how old u get .. it's always fun. Núhh ... flottasti pakkinn var náttla frá syni mínum, listaverk sem hann gerði á leikskólanum handa mömmu sinni (reyndar asnalegt að pabbi hans fékk ekkert... verðum að skiptast á að hafa það);) límdar 3 skeljar á svo er grænt blóm í miðjunni. Váá ég heillaðist algeerlega sko. Án gríns, það kom mér svo á óvart hvað þessar hendur geta gert.
Ég fékk líka bókina hennar Jónu Á. Gísladóttur, sá einhverfi & við hin heitir hún. Ég er  byrjuð að lesa en á eftir að fá betra næði til að lesa hana, ég veit að hún er æðisleg. Læt fylgja með link á bloggið hennar til að þið vitið um hvað ég er að tala, endilega kíkið. Hún er brilliant penni konan. Samt ekki bic blár eins & ég... neeeiiii hún má vera rauður eða grænn. www.jonaa.blog.is  vona að þetta virki .... annars bara nefna það & ég laga þetta.

Nú, þar sem ég byrjaði að borða í gær þá datt mér í hug að stíga á vigtina hér í gærkvöldi & vææægt sjokk fékk ég. Þetta gat bara ekki staðist. ÉG vigtaðist fyrst 38,5 & svo 40,2. Neeei lítil & nett er marh en halló, ég er nú með brjóst & smá mjaðmir ... & þar liggja alveg 10 kg :D :klikk: Enda fattaði ég þetta þegar ég kom æpandi fram þá segir pabbi, nei Lilja mín tappinn datt undan vigtini & þú verður að stilla honum rétt undir... hehe þá komu 13 kg sem vantaði upp á ... þetta gat bara ekki verið ... er sem sé 53 .. sem passar alveg við mína 153,5 cm.... jess lov's æ em little and like it.

Hvað svo , nei sko , já sko .... veit ekki meir , Oddný jú á morgun lov's, þetta verður svakalegt geim , svo ég held ég haldi heim held ég haldi heim... svo ég verði á réttum stað á réttum tíma. Ég er rétt kona á réttum tíma í réttu húsi lalalalla ....

Nú er prinsinn lagstur & ég eiginlega offf ... eftir erfiðan dag ... í ÁTI. Ég er átvagl dauðans & elska það ... ég bara eeelska að borða þennan mat sem er sem betur fer bara 1 x  á ári. Ef hann væri oftar þá væri ég DAUÐ úr OFFITU. & nei nei ... það er betra að sleppa því & stunda eitthvert annað áhugamál krakkar mínir & ég á þau nokkur ... bara misjafnlega mikið sem ég næ að stunda þau ... sönginn stunda ég mest því ég náttla syng alltaf hástöfum í sturtu .. en ekki baði þá heyrist of vel í mér skiljiði.

Held ég láti þetta gott heita í bili af bloggi ... er orðin heiladauð í bili ... skil ekki hvað varð um orðin sem ég hafði í kollinum áðan .. bara fauk út .... eitthvað annars hugar núna ....

Later Pink Lady has lef ðe building :D;):haha::klikk:





» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 17:22:46 / PinkLady

Já sææælll ... tilraun 2

Já prufum aftur smá. Janis æði, Gugga enn betri, kökurnar aaaawwwwsome, hvítvínið áfengt, dansinn var snilld, ég er BRILLL, annað sett segiru Hawaii pía. Já hvernoig væri það,  verð bara panta nokkur eintök hjá þér núna :D Eða bara fara slaaaaka & koma til þín í sandinn, í sólina, í rautt & hvítt, í ræktina, & ohhh ... SWEET.

Hugurinn ber mann sko hálfa leið ef ekki alla. En geri smá pásu núna á skriftum mínum kl. er 13:52 ... ætla eyða smá kvolití tæm með henni Sunní minni í kringlunni hún vill MCdonalds. Samt ekki Old Mcdonald ..... ferskann held ég :D


Núhhh, kl er 16:31 að staðartíma & ég er búin að eyða aaawsome kvolití tæm með henni Sunnívu í Kringlunni ... hún kaupti náttla jólapakka handa Vigni & svo Mcdonald krakkar mínir & kók í vél ... mmmm. Elska það.

Sótti svo Prinsinn minn yndislega & já ... kom hér heim, henti í uppþvottavél & er að hella mér upp á kaffi ... sterkt kaffi sem aðeins pabbi & mamma vilja drekka ... en eruði hér ??? Nei sé ykkur ekki ... hahaha smá skot á fólkið sem hefur mestar áhyggjur af því hvað þau koma sjaldan, en þetta er allt í lagi, þið vitið að ég kem bara til ykkar ... fyrir utan það að ég skil svo sem mjög vel að þau komi sjaldan, það tók þau 18 ár að losna við mig :D :haha: & núna um jólin ætla ég að flytja til þeirra bara. Eða frá Aðfangadegi fram á jóladagskv. allavega. Fæ þá líka vera með stelpunum mínum yndislegu .. vitiði, Opal & Yoko ... þetta eru náttla bara bestu tíkurnar í bænum :) (including me ok)


Nú hvert var ég komin í þessu öllu .. Oddný er að koma til "landsins" &
ætlum við að skemmta okkur voða vel saman ásamt VEL VÖLDU fólki. Þar sem allir eru VINIR .. annað en HINIR. Nei nei þetta rímaði bara svo flott.

Nú er Dadda Mía mín búin að vera með hlaupabólu & Gunnhildur yngri að byrja ... jebb & mig dreymdi nú að Mikael væri byrjaður líka en held að það gerist ekki því mig dreymdi líka að ég væri ólétt & það er ekki að virka held ég Marh þarf nú að gera eitthvað til þess er það ekki ... annars man ég ekki hvað ég borðaði þegar Mikael fór að vaxa þarna inni. Lonni sys borðaði fullt af súrum gúrkum þegar hún var með Gunnhildi & ég var einmitt að kaupa mér krukku af ORA súrum krukkum, GÚRKUM meina ég (ætla leyfa prentvilluni að vera) & ætla ég að láta þær vera núna. Halda mig við rauðbeðurnar .. mmmmm.. Mamma viltu GJÖRA SVO VEL að eiga nóg um jólin ... líka rúgbrauð & kæfu ... sæææll eigum við að ræða hvað þetta er gott. Nei held ekki.
Elska Jólin & hátíðarnar því þá fær maður að BORÐA, & amma er búin að lofa mér risesalamand (eða hvernig það er skrifað) á áramótunum... Það er nauðsynlegt sko, & eiginlega purusteikin líka ..... ohhh bara tala um það skohh. Mamma ætlar líka að leyfa mér að borða hreindýrasteik messér ... keypti víst kíló gellan.

Talandi um mat ...Sunníva elskan gaf mér hangikjet sem N1 gaf henni. Já hún er sko ógisslega góð við Lilju "frænku" ... ég er nebbla týnda frænkan hennar sem hún skilur ekkert í að hafa ekki uppgötvað að hún ætti fyrr. Svona er lífið skrítið ... eða þússt .. hvaða manneskja getur ekki séð hvað ég er æðisleg ?? Fólkið sem er blint líklega .. en þeir missa af miklu, því ég er ÆÐI, HALLÓ hafiði hitt foreldra mína & Systir ... góðan daginn sko Við erum skemmtilegasta fjölskylda sem finnst á landinu ( eða allavega í þeim hópi) Mamma tildæmis, hún er ótrúlega fyndinn kona, held að maður sé ekki í nálægð hennar án þess að hlægja af orðavillum hennar. Hún getur verið ... já hvað getur hún verið ?? Amma & Afi .. brill pípol líka sko. Svo á ég líka æðislega ættingja á Svalbarðseyri .. vita ekki allir hvar það er ???

Ég hélt smá afmælisveislu um daginn ... eða 12 dec ... & þetta var æðislegt.. Sonja & Raggi hennar gáfu mér blóm, sem standa ennþá hér á borðinu, enda eru þetta VEL GEFIN blóm sjáiði. Með allavega 5 háskólagr. Svo komu þau með leynigesti líka :) Sesar and his ShiningStar ... LáraEnglaGyðja .. Guðdómlegt fólk skohh ... elzka þau öll sko .. takk fyrir mig.
Helena var hér á vappi líka .. 2falt ammæli okkar ..
Nú svo kom Vignir & Sunníva með sinn vasagest, hann Adda Padda. Öhhh hver kom fleiri ... held að íbúðin mín rúmi ekki mikið fleiri sko. Enda vorum við ekkert í rúminu ... nei róleg sko ... Jú Maríanna var hérna líka ... þið bara vitið það ekki þið hin sem komuð .. she's always in my heart and soul :) (með ströndina sína) Guggan mín var lasin en við tókum þetta út seinna & fyrr :):klikk:Nú Lonni fékk pössun á Laugardagskvöldið fyrir afmælið sem var á föstudagskvöldið svo ég á inni hjá henni.
Enda erum við Lonni alveg að fara fá okkur hvítvín & Tarot ... er það ekki ?

Nú nú er tölvan að deyja svooo ég kveð með BROS á vör ... enda varð ég vör við að ég þarf að klára plokka mig ... Einar Örn ... hvar er lagið mitt ??? HVAR???

PinkLady has left the building, but she will be back :) Later amigos..


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 01:11:55 / PinkLady

Skrifa blogg segiru ... já & þið :o)

sko þetta er eitthvað bilað .. get ekki minnkað letrið & sææælll þótt ég sjái illa þá skulum við aðeins róa & okkur & leyfa mér að líða eins & 21+++ áður en við stækkum  letrið í fyrir BLINDA. 


Later gater .. don't like that sorry .. ætla bra halda áfram að hlusta á þetta brill Rokk sem ég datt á hér á X-INU .
Betra að hafa sumt með stóru svo þið takið örugglega eftir því :S Alveg spurning um að skipta um lit líka á sumum orðum... pæli í essu..  Janis var ÆÐI ... GUGGA LÍKA hefðuð bara átt að heyra í henni. Hehe .. við erum búnar að baka síðan, drekka smá hvítvín, dansa nokkra dansa, bæði við 1 2 SELFOSS & svo auðvitað líka við BILLIE JEAN  (hún sko) and aloooot of stuff. Gugga mín .. æ dú lov ya jú nó. Manstu undir brúnni sem liggur yfir Blöndu .. össs .. mamma veit ekki hvað gerðist þar svo usss. & hvað þá pabbi :D Við vorum algerir villingar .. hverjir voru með okkur .. Inda & einhverjir... 
Djí ons jú pop jú kent stop .. sjáiði mig .... BÆ

PINK LADY has left the building verry quickly

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 22:12:07 / PinkLady

E.S.

UPP Á ÞESSA BLOGGFÆRSLU HÉR Á UNDAN VANTAR ALVEG HEILAN HELLING. EN VAR Á ÞÖNUM &  ER UPPGEFIN EFTIR DAGSVERKIN FRÁBÆRU. ODDNÝ MÍN .. ÞAÐ VANTAR ALLT UM ÞIG ELZKAN.

PINK LADY HAS LEFT THE BUILDING AGAIN .. 4 NOW.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 11:48:00 / PinkLady

Áttu nokkuð dót á tombólu ??

Bíddu hva meinar Lady in nú ? Spyrja sig kannski einhverjir, þó ekki allir því sumir vita að það er auðvitað við öllu að búast frá mér.. ef einhverjir vissu það ekki þá vita þeir það bara núna. Anyways, ég sit hérna með prinsinum mínum & við erum að horfa á snillinginn sjálfann hann Sveppa, sem gerir hverju foreldri greiða með sprelli sínu á laugardags & sunnudagsmorgnum & hann hefur gert það stundum að minna okkur á hvað lífið var eiginlega simple hérna fyrir  örfáum árum þegar ég var yngri td. (Voga mér ekki að segja lítil því ég hef eiginlega sko ekkert stækkað síðan ég var YNGRI ... hmmm) :haha: Tildæmis var hann áðan að safna dóti á tombólu (þar náði ég í fyrirsögnina sko) & hver man ekki eftir að hafa gert það ? Ég allavega gerði það ég  veit ekki hvað oft, safnaði fyrir kirkjuna & rauða krossinn & sjálfa mig líka &meira segja einu sinni var peningnum varið í pizzu frá Jóni Bakan (sem var best í gamle dagen, reyndar bara af því Lonni sys sagði það  sko:$) Ábyggilega besta pizza sem ég hef fengið ever, því já ... Ég fékk að borða jafnmikið & systa & einhver vinkona hennar BAAAARA af því að tombólupeningurinn minn & hennar Rögnu vinkonu var notaður til að greiða fyrir flatbökuna góðu :lol::lol:8)

Já Syss dó sko aldrei ráðalaus, en allir græddu & er hún náttla bara sknillingur:!: Ég hefði ábyggilega gert slíkt hið sama in her shoes back than. Nú aftur kemur þessi athyglisbrestur fram í blogginu mínu & ég er farin að vaða úr einu í annað, er líka í NOKIA vaðstígvélum svo ég er safe !!! Allavega mér finnst ég bara alltof sjaldan sjá krakka með tombólu nú til dags (djí hvaða gamla kelling er að tala í gegnum mig) Nú til dags & ég er actully ógó hneyksluð & hristi hausinn þar sem ég sit hérna með Svamp Sveinson í sjónvarpinu.
Allavega áfram tombólur. Það voru nú fleiri leikir sem marh fann upp á hérna í den tid sem ég sé ENGANN krakka leika sér í, í dag s.s. píló eða  píluleikur & hann var nú meira leikinn á sumrin. Þá var nauðsynlegt að eiga gott krítarsett & krítaði marh pílur á gangstéttina & svo átti næsta lið að elta pílurnar & reyna ná þeim sem voru á undan eða finna lokapunktinn. (Voru yfirleitt  saman í liði) Man nú ekki alveg hvernig þetta var nkl en þetta var ógó skemmtilegt & fór marh í gegnum blokkirnar hér í hólahverfinu & svona. Var yfirleitt ákveðið fyrirfram hvaða hringir væru notaðir & voru hringirnir hér miðaðir við blokkir sem stóðu í kringum hólanna sem eru hér í hverfinu.
Svo var 1kr. fyrir mér 1 2 3. Skil nú svo sem að ekki er hægt að leika þann leik í dag þar sem krónan er löngu orðin núll & nix:haha::whut:, en það er alveg hægt að taka etta í evrum sko:haha:. Já eða dollurum til að gera etta soldið amerískt.8)

As I was saying þá var lífið mun einfaldara, í dag þurfa allir að eiga playstation 1 2 & 3 pc, apple, dell, nokia, samsung, sony, x-box, dvd,laser & já bara name it. Athugið það að ég er ekki búin að telja þetta allt upp því ég bara legg ekki í það. Eina sem var til í NOKIA á mínum uppvaxtarárum voru vaðstígvélin sem ég er ennþá í hér í þessu bloggi mínu til að vaða úr einu í annað. Hmmm ... já breyttir tímar gott fólk breyttir tímar.

Annars er það nú helst í fréttum hjá mér að ég er byrjuð að mála íbúðina MÍNA :d Já ég á ana sko næstum því allavega, því ég hef algerlega séð til þess að þessi íbúð líti sæmilega út & er það "the real owners" bara til lykke. Afi minn er svo yndislegur að hann stóð hér & málaði eldhúsið hér á föstudag & við amma dunduðumst í því sem við gerum svo vel saman að ganga frá, skipuleggja & þrífa. Við eigum þetta sem hálfgert sameiginlegt áhugamál síðan ég var YNGRI (enn & aftur voga ég mér ekki að segja lítil) & er þetta einmitt merki um það hvað marh fann sér að gera hér áður fyrr (djí hva ég hljóma gammel kvinde aftur núna sko sjæse) Eða var það kannski bara ég sem hafði gaman af því að þrífa ???
Allavega voru ma & pa oftar en ekki ljómandi hress þegar þau vöknuðu á morgnanna & Liljan Litla var búin að þrífa alla skápa að innan sem utan, endurraða inn í þá , vaska upp & sópa gólf. Manni leiddist allavega ekki & hvað er betra en vera ungur & ör eiga vonir & æskufjör :D Geta sungið lifað leikið sér ... nei ok smá athyglisbrestur aftur... allt í einu farin að raula "Bátur líður út um eyjasund" hehe:$ Nú en hvar var ég ...
Já, ég var að mála, já eða afi öllu heldur. Eldhúsið sem sé búið ALVEG. Búin að hengja upp það sem á að hengja & þrífa & skipuleggja skápa & alles.
Litli prinsinn fékk að vera hjá afa sínum (föður mínum) í Skjólinu ásamt frænda sínum (bróður mínum) & stelpunum okkar fögru Opal & Yoko. Talandi um þær, ég hefði aldrei trúað því hvað pabbi gæti orðið ástfanginn af einhverjum hundum en hann actully ljómar þegar hann talar um þær 8|:|;) Kom svo hér með prinsinn um 8 leitið & gúllas í brúnni með karteflumús handa litlu skottunni sinni :haha: mmmm lostæti:!::!:

Vá djíses sko eins gott að ég sé í þessum brilliant NOKIA vaðstígvélum annars væri ég sjálfsagt drukknuð í öllu þessu orðaflóðí sem ég hendi hér fram & rugla fram & til baka í þessu öllu, skjótandi hinum & þessum minningum liðinna ára inn í & kommentum um allt sem ég þarf að tjá mig um. Á það bætandi er ég farin að syngja líka. Syngjandi hér syngjandi þar syngjandi geng ég allsstaðar. Sí & æ, æ & sí ALDREI fæ ég nóg af því.
En  samt nóg af því, því afi var að mála & þetta er svolítið truflandi sko. Á mánudag verður svo haldið áfram, stofan tekin í gegn eða enn betur ég náttla þreif hérna líka á föstudagskvöldið til að láta etta líta sæmilega út.
Er ekki alveg viss hvað við náum á mánudaginn en það verður bara koma í ljós, ég ætti allavega að geta vaknað snemma gott fólk því ekki var neitt djammerí á manni þessa helgina, þvílík & önnur eins framför hehe. En samt bara æðislegt !! En þið skuluð ekkert taka þetta sem sjálfsögðum hlut því ég er UNG í alvörunni ennþá & má bara alveg njóta lífsins á minn hátt. (Þið sem takið þetta til ykkar þið eigið ábyggilega líka að gera það)

Er samt með skýringu á þessum þrifum held ég, & hún er sú að amma mín, sú fagra kona er meyja (svo ég vitni í stjörnuspekina heh) & það vill svo til að Meyjan þolir ekki óskipulag. Mjög þrifin af eðlisfari. Þið sem þekkið Meyjur ættuð að geta skoðað þær nánar & sjá, í svona 80 % tilfella stenst þetta. Nú þar sem ég var mikil ömmustelpa þegar ég var yngri & er enn, þá læra börn það sem fyrir þeim er haft :d & þetta var mér borið á silfurfati ef ekki GULL. Hvort er betra ???
Takk amma mín, þetta er eitt það besta sem hefur fylgt mér. Nú anyhow, ég klára þetta verk allavega í komandi viku & verð með flotta íbúð þegar ég fer í Óperuna næstu helgi með henni Guggu minni að sjá Janis Joplin 27. Getum þá kannski dreypt saman á hvítvíni hér áður & kveikt á kertum & kózý .. úllala.. bara rómantík í manni ha. 28 nóv er dagurinn. Stóri dagurinn.

En jæja fólkið mitt góða, ég verð að hætta þessu, endurnar bíða sársvangar á tjörninni eftir að Mikael, Dadda Mía bedstemor & bedstefar komum & fæðum þær allar sem 1. Svo er barnaafmæli já eða næstum unglingaafmæli hehe, stelðpurnar hennar Elsu minnar eru 9 ára að verða 15 eins & hún sagði sjálf móðirin nýbakaða again 5 barnið sko ... & ég að fara máta á eftir. Þetta má ekki sko, eggjahljóð í mér & enginn karlmaður ... hoba hoba, gengur ekki. Það er að segja eggjahljóðið. Spæli kannski 2 bara í tilefni þessa & læt það nægja takk.

PinkLady has left the building & remember she will always be back :D


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 10:16:54 / PinkLady

Á ekkert að hæla manni ???

Er von að maður spyrji !! Það var nefnilega á laugardaginn sem ég stóð í mínu mesta sakleysi í eldhúsinu hjá fjölskyldu nokkri vestur í bæ. Vill svo til að ég er oft kennd við þetta fólk svo þetta var alveg stórmerkileg fjölskylda ;)
Núhh, svo ég komi mér einu sinni beint að efninu, ég var þarna stödd í ferlega flottum svörtum leðurstígvélum (sem eiga nú næstum heima á þjóðminjasafninu, svo gömul eru þau) Keypt 2002 af starfsstúlku sem vann með mér í pennanum. Júlía heitir hún, því ég veit að bæði Ása & Maríanna spyrja sig, hver var það ?? Allavega aftur að stígvélunum... ég var þarna að fá mér sósu á kjúllann góða sem pabbi matreiddi beint úr kjötborði Nóatúns :haha: & svo bara allt í einu, stend ég eða stend ekki, án hælsins á hægri fæti. Say what.. hann bara brotnaði svona fallega undan. Djíses sko ég sem er búin að ganga á þeim síðan 2002, dansa á þeim síðan 2002 & nánast eiga barn á þeim 2004 ... ahh þarna kom skýringin, ég hef farið með þá á meðgöngunni I was like a elephant @ that time hihi. Marh lærði það þá, do not eat 4 2 people, þess vegna át ég fyrir 6. Var aldrei minnst á það í samningnum. Held ég sé með athyglisbrest á háu stigi, eða tjáningarþörf ég veð úr einu í annað & finnst ég mesti snilldarpenni samt sem áður.
Bic blár kúlupenni takk. En anyhooow, minn yndislegi faðir skutlaði skónum til læknis & hann sagði þetta myndi kosta 6000. Mikið ? Ódýrara en ný stígvél samt, alveg helmingi ódýrari. Kreppustígvél.

Nú fleiri atburðir áttu sér stað þetta laugardagskvöld, I was drinken the bols 8ok ég veit ekki rétt stafað, en ég skildi þetta á miklu skemmtilegri hátt) :haha::haha: Fyndið ha ?? Smá svona með kaffinu bara .. svo kom bróðirinn, "mamma, Lilja komiði í sjómann" & við náttla mæðgur sterkari en hann (allavega saman) slógum til, tókum smá sjómann, & komumst að því að mamma sem er örfhend (er etta rétt skrifað) er sterkari á hægri & ég sem er rétthend er sterkari á vinstri .. funny dont u think8):lol:
En ég kom bróður mínum á óvart get ég sagt ykkur, hann var á vissum tímapunkti, ekkert ferlega langur punktur samt en sama, aaaalveeeg að tapa fyrir mér með vinstri hehe. jöööss æ em stónger ðen í þot. Hann játaði það meira segja, gerði mig ógurlega stolta, að systa litla písl er sterkari en hann grunaði. Já krakkar  mínir nú skulu þið passa ykkur, Liljan Litla Leynir á Leyndarmáli kraftanna :d múhahahahahaha. Einkaþjálfunin hjá honum Grétari mínum sártsaknaða skilaði sér aðeins & dó ekkert eftir það. en djööö sakna ég hans, & tímans sem ég eyddi í svita & púl.
Það er sona þegar sumir eru sumir. :klikk::evil: Greinlegt að ég bara verð að fara til Hawai, viss um að Maríanna myndi púla mér þar út. 1 góð ástæða afhverju ég ætti að fara til Hawai.
Önnur góð ástæða, nú everybody who comes 2 Hawai they get laid he..:haha:
Nú svo þriðja enn betri ástæða afhverju ég ætti að fara til Hawai, mig vantar mæðraorlof á ströndinni after getting laid and working so hard out, með kokteil í þeirri hægri & eitthvað annað í vinstri þar sem hún er svo sterk.

Já þar hafiði það kæru lesendur, 3 good reasons 4 me 2 go 2 Hawai, hælalausa Lilju & sjómann.

Reyndar verð ég að skjóta smá hérna um hann gaurinn minn sniðuga með, ekki nóg með að hann stendur fastur í þeirri trú að kistillinn sem ég er með hér á ganginum sé fullur af gullpeningum eins & hjá henni Línu Langsokk, hvort hann haldi aðég sé hún veit ég ekki. Þetta eru þá allavega algerir kreppupeningar eða kannski skreppu .. sem skreppa saman & verða af engu :!:
Heldur er hann mjöög klár að því leitinu til að ég var að tala við hann á leið okkar út í leikskóla í morgun, & reyna segja honum þar sem hann tók góóóðan tíma í alltsaman í morgun að við myndum ekki ná morgunmatnum, þá tók hanná það ráð að hlaupa út á leikskóla .. svona "mamma, ég nenni ekki að hlusta á etta nöldur í þér hlaup" heheheh8| byrjat snemma skooo .. sææææl.

Læt þetta gott heita í bili af bloggi & bulli & læt ekki meira í mér heyra (hey rím) fyrr en ég hef safnað amk. 3 kommentum, mamma, leggur ekkert inn, tekur bara úúúút ... skuldir þínar sem þú aldrei tryggðir sitja í bankanum, óúteystur tjekki í kommentbankanuuuuummmmmm.... lalalal. & nú hef ég sungið mitt síðasta í bili ... thank u !!

Adios Amigo .. LadyLilja has left the building.


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 00:25:03 / PinkLady

Min lille kat :)

Seden lille kattenkilling mjá lalallalala... vá hvað þetta lag situr í hausnum á mér allt í einu en ég man bra ekki alveg textan. Hvar ætli kasettan sé Lonni ? Hvaaar? Var sko frekar mikið spiluð hérna eftir að Lonni kom frá Lillian & Arthur í Denmark í den hihi. Anyways þetta var ekki bloggefnið... hvað var það aftur ? Já ok nú man ég ...
Ég er án efa viss um það að ég á laaaangskemmtilegasta kött í heiminum. (pet like the owner) Ætla samt að byrja á að taka fram að hann er KOLBIKA svartur & ofan á lagt er hann fæddur föstudaginn 13. júlí ... var ábyggilega fullt tungl líka án þess að ég viti það. Heheh ... allavega, núna í kvöld sat ég hérna með mitt namminamm í poka & kókglas með sæng & næs að horfa á singing bee sem er alveg ágætisþáttur fyrir utan þessar hallæris píur á bak við (sem eru deffently bara settar til að fá karlkynið sem ekki hefur áhuga á að syngja til að horfa hihi) sry ég bara þoooli þær ekki eða dansana öllu heldur þekki þær ekkert.
Ég nebbla fíla mig alveg í botn að syngja hérna með enda söng-óð heimilisGyðja hér á ferð. Nú aftur að kettinum, hann kemur hér hlaupandi með hárteygju í kjaftinum & leggur hana á stofuborðið, ég sé hann ekki strax svo hann fer að ýta teygjunni í átt að mér & lox tók ég við mér & semsé ég átti að kasta henni sem ég geri, hann stekkur á eftir & sækir... and again, kasta, sækja, kasta, sækja... klukkutíma þá gafst ÉG upp. Þetta hef ég bra alls ekki séð alla ketti gera, hélt þetta væru hundar sem gerðu bara svona. Hehehe. Nú þetta er ekki allt, ooo nei.
Þegar dyrabjallan hringir, hleypur hann fram, stekkur upp á borðið hjá dyrasímanum, ef ég kem ekki strax, heyrist MJÁÁÁ ... jebbsí folks hann kallar á mig.
Æ em telling jú gæs, held hann sé hálfur hundur hehe eða að Leila mín heitin hafi bra skilið eftir smá sona spirit í onum... sem er náttla ekkert verra. Nú liggur hann hér uppgefin á koddanum mínum nánast með smá sæng. Ohh hann er æææði. Mi Amor.

eeeen jæja mooore later. Adios mi Amigo :)
LadyLilja has left the building :) I will be back :))))

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 01:59:19 / PinkLady

Hellú mæ lovlís

Jæja ýmislegt hefur á daga mina drifið síðan síðast ....

* í dag, fann ég fortíðina mína. Fór í geymsluna hjá Baldri & náði í 4 kassa sem ég átti þar & þið sem þekkið mig vitið að ég varð að taka upp úr þeim & kanna þetta betur :haha:
Ég fann þar á meðal öll ljóðin sem ég samdi á unglingsárunum & það var eiginlega bara gott að skoða þau. Já manni leið nú ekkert sérstaklega vel á þessum árum & minntu þau mann á það. En það sem drepur mann ekki styrkir mann & þau orð eru sko sönn. Margt lærði ég á þessum tíma & gegnum tíðina & eitt það helsta var held ég bara, hvernig manneskja ég ætlaði ekki að verða. Reyni að koma fram fram við fólk eins & ég vill láta koma fram við mig.
En auðvitað er ég mannleg & geri mistök ... en reyni að læra af þeim líka :)
Anyways nenni ekki neinni sorgarupprifjun hérna enda er þetta FORTÍÐIN. Farin burt & verður ei meir.

Fann alla geisladiskana mína sem ég hef shoppað í gegnum árin & hún er sko margvísleg. Enda er ég frekar fjölbreytt þegar kemur að tónlist þótt rokk standi ávallt upp úr ... alltaf hressandi. Svo á ég náttla eldhústónlistina líka .. hún er á ýmsum sviðum.

Talandi um tónlist Einar Örn kíkti við í 1 kaffibolla í gær eða voru þeir 2 ?? ... man það ekki, & downloadaði hann soldið af tónlistinni sinni fyrir mig. Hann er náttla snillingur & þið eigið ábyggilega eftir að heyra eitthvað í honum. Frábær texta & laga smiður. Við spjölluðum um allt & ekkert ... like always. Takk fyrir lögin 8)

Talandi um hann ég fann líka voða minningar frá Bolungarvíkinni í kassa. Set þær aftur þangað, fortíðin sko ...

Kíkti aðeins öööörlítið út um helgina & skemmti mér alveg Gyðjulega vel, svona eins & Gyðjur gera. Fyrra kvöldið var bara rólegt & skemmtilegt, dansað & svona eins & vaninn er.
Seinna kvöldið var aðeins verra .. einhver asni gerði sér lítið fyrir & gaf vini mínum 1 högg í andlitið, þurfti að sauma & læti. Merkilegt hvað sumir eru sorglegir að labba um bæinn & kíla fólk bara 4 no reason at all ... leita uppi vesen. Svona fólk á bara erfitt & er bara heimskara en brauð;). Tjái mig ekki meira um þetta hér, því orðin eru of ljót til að segja þau á opnum vef.
Allavega samt þið sem komuð með mér & gerðuð helgina skemmtilega ... thank u ... ég fæ bara ekki nóg :)
Algerlega danssjúk.

Lonni fallega sys kom svo í dag með fallegu snúlluna sína hana Gunnhildi Maríu & dúdda mía ... (ekki Dadda Mía hihi) hva hún er mikil snúllína. Gæti borðað hana sko ... ungbarnalyktin er svo góóóð .. mmm , I know I am crazy, en flest ykkar vita held ég hvað hún er góð. Jæja Lonni veldu kvöld aftur fyrir Tarotið & ég klikka ekki á klukkuni . KLUKK. Þú líka þarna bloggdauða bloggsystir :) hihihi , þú veist samt mér þykir vænt um þig sæta.

Eins gott að Viza skvíza sé í orlofi núna marh, & kreppa var líka góðs viti hér í gærkvöldi, annars hefði ég hækkað kortið strax í dag, & shoppað á hinum ýsu fata & skósíðum... jebb hún Oddný (frænka Vignis þið sem spyrjið) var svo yndisleg að sýna mér alveg ferlega flottar fatasíður , omg held ég hafi fallið fyrir 4 hverju vöru sem ég sá. Sæææææl ... býð þér í netverzlunar heimsókn þegar þú kemur næst suður ... vorum ekkert ósammála um það.

En hva segiði, er kreppa ? Bara aldrei heyrt etta fyrr ... neeeiiiii djóóók, sko lélegur djók. hehe ... er orðin yyyyfir mig þreytt á þessu tali, þetta r svo neikvætt allt saman að það er ekki skrítið að fólk sé þungt huxi, það er ekki talað um NEITT annað í þessu þjóðfélagi. Sko málið er ekki að ég sem ekkert á skil etta ekki, nei málið er bara að það er svo margt annað til að lifa fyrir .. & gleðjast yfir. Nenni ekki að pæla eingöngu bara í svona neikvæðum málefnum. Allavega gerist fullt af jákvæðum hlutum hjá mér :)

Svo kíkti  Birgitta sæta á mig (það var jákvætt) því hún var svo hamingjusöm & leið svo vel, það er svo gott að vita þegar vinum manns gengur betur & eru happy :) I lov u girl ... koddu fljótlega aftur sæta mín ... já já ég er alveg að fara taka strætó upp á skaga, ohhh mér finnst þetta bara svo langt eitthvað. Svo líka er ég KR ingur mundu það. Þú varst það líka manstu .... look deeper in your heart tíhíhí.

Já vá er ég búin ? Nei eða hvað ? Man það ekki, later gater.
Ætla hringja í Maríönnu á eftir þess vegna er ég vakandi kl 02:00. Hawai er bara allt of langt á eftir okkur en hva leggur maður ekki ásig fyrir sólRÍKA vini. Hún er ferlega rík með sólinna þessi elska, spjallaði við hana á msn um daginn þá var kl. 6 hjá henni, um morgun/kvöld ..ahhh eittvað allavega & 28 stiga hita .. blehhh. Þetta er einmitt tíminn til að fara bara stefna á Hawai .. make the life brighter. Safna safna safna & svoooo BÆÓ. Held það sé bara ekkert sem stoppar mig þegar peningurinn er kominn. Ekki svo langt í etta held ég .. jan eða feb kannski bara. Ohhh fer bara hlakka til við það eitt að skrifa etta hér.

Heyrðu nú er ég hætt .... allur skemmtilegur lestur tekur enda (takiði eftir hvernig ég orða þetta ha...) en like I say I will be back.

Adios amigo ... LadyLilja has left the building. Chao

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 10:24:27 / PinkLady

Klikkuð klukka !!!

4 störf sem ég hef unnið um ævina.
Nóatún
Penninn
Fellaborg
Sláturfélag Suðurlands

4 bíó myndir sem ég held upp á.
Dirty dancing
Grease
Rocky Horror Pic. Show
Hair
(ég veit elska söngleiki)

4 staðir sem ég hef búið á.
Reykjavík
Bolungarvík
Hnífsdalur (í 2 vikur eða 3)
heima hjá mér

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar.
Nágrannar
Nip Tuck
Dexter
Dagvaktin/Næturvaktin

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum.
Danmörk.
Spánn
Færeyjar
Írland/Dublin
Bretland/London

4 síður sem ég skoða daglega ( fyrir utan blogg síður.)
Myspace
mbl.is
Heyrðu ég skoða ekki margar síður :D
Bloggsíður út um allt/BL stundum

4 matarkyns sem ég held upp á.
Lambakjöt
Humar
Silungur/Lax (í hinum ýmsu útgáfum)
Salat & núðlur

4 bækur / blöð sem ég les oft.
Ísfólkið
24 stundir áður en það hætti uuuuurg
myndbönd mánaðarins
RL bæklingurinn /Ikea bæklingurinn

4 staðir sem ég vidli helst vera á núna.
Hawai hjá Maríönnu
Costa Del Sol
Granaskjólinu mínu hja´family & stelpunum mínum
Uppi í rúmi ....


já ég var klukkuð af maríönnu sætu & nú klukka ég ykkur : Gugga, Mamma,Silla(ef þú kíkir við hehe), aaaand Einar Örn. Já svona koma svo .... svo getiði líka bara svarað í kommentum hjá mér hver sem vill :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
hve margir koma við
Í dag:  7  Alls: 11884
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Skoðun skiptir máli
sjálfstæðisflokkurinn ? álit ..